lúði
Er algjör lúði
Varð veik í gær :( - seinnipartinn í vinnunni varð mér flökurt en hélt samt nánast vinnudaginn allan út. Náði líka að labba heim úr vinnunni áður en uppköstin byrjuðu en rétt náði.
Í morgun var ég síðan að reyna að ákveða hvort ég ætti að fara í vinnuna, fékk mér ristabrauð sem ég er ekki búin að skila og ákvað síðan að fara í vinnu. Nema ég var ekki komin langt þegar ég ákvað að væri kannski ekki alveg sniðugast að fara. Maginn ekki alveg komin í lag og ekki með neitt þrek. Það ásamt því að bílamengunin var alveg að fara með mig.
Gekk því aftur heim og lét vinnuna vita - algjör lúði semsagt
Mér þykir leitt að heyra þetta en ég er hrædd um að ég sé sökudólgurinn...það er séns að ég hafi smitað þig.
SvaraEyðaKv. Guðmunda
hef enga trú á því :) en slappst þú ekki?
SvaraEyðajú ég slapp en gæti samt hafa smitað þig, annað eins hefur gerst.
SvaraEyðaGuðmunda
hmm.... ekki sannfærð eheh fékk þetta ekki fyrr en seinni part mánudags.. nema ég sé svona lengi að taka við ;)
SvaraEyða