fimmtudagur, mars 05, 2009

Kalt

Eruð þið ekki að grínast með kuldann?

Hélt ég mundi ekki lifa gönguna af í morgun, hélt ég yrði bara frosinn einhversstaðar í Laugardalnum og mundi kannski "finnast" þegar þýða kæmi.

Heppni bara að var logn - meira segja ipodinn minn hélt ekki kuldann út en sem betur fer búin að þiðna núna, ipodinn sko.

5 ummæli:

  1. Það var ekkert svo kalt í gær... ég labbaði með 5 stk börn heim og það var bara fínt ;)

    SvaraEyða
  2. það var ekki kalt seinnipartinn þarna...

    um átta um morguninn var -9 stiga en var komið í -3 seinni partinn enda lifði ég gönguna af heim

    SvaraEyða
  3. þess utan - varstu eitthvað að ruglast - hélstu að þú værir komin með svona mörg börn?

    SvaraEyða
  4. já okey... það var náttúrulega sól þegar að ég labbaði þannig að það munar um það :)

    heyrðu nei ég ruglaðist ekkert, Embla fékk að taka 3 leiksk.vinkonur heim að leika eftir leikskólann, partei. skil ekki hvernig amma mín lifði þetta af hérna í gamla daga :)

    SvaraEyða