Langlífi
Þessi frétt birtist á mbl.is í dag.
Elsta kona Noregs, Gunda Harangen, er látin 109 ára að aldri. Harangen sagði í viðtali, sem birtist árið 2006, að hún hefði lifað svona lengi vegna þess að hún drykki eitt glas af koníaki á hverjum degi og hefði ekki verið í tygjum við karlmenn.
Harangen, sem var elst sjö systkina, fæddist 28. desember 1898. Hún lést í svefni 25. nóvember, að sögn frænda hennar.
Ég var næstum því farin að svitna við tilhugsunin að verða svona - passar allt svo vel, elst sjö systkina (ég á sex systkini þannig að ég hlýt að vera elst af sjö) - eða alveg þangað til ég fattaði að ég drykki ekki koníak.
Er hólpin
Þú gætir byrjað að staupa þig núna!
SvaraEyðaGuðmunda
hahaha einmitt það sem ég ætlaði að fara að segja, aldrei of seint að byrja ;)
SvaraEyðaöss spurning hvort hægt sé að taka þá áhættu - ef ég skyldi fara að staupa mig þá er hættan á að ég verði í tygjum við karlmenn....
SvaraEyðaen þar fyrir utan er ég heldur svo sem ekkert að leita að langlífi bara ánægju lífi :)