Kynningar
Er búin að vera nánast í allan dag í tíma í ákveðnu fagi í viðskiptafræðinni þar sem nemendur voru að kynna verkefnin sín meðal annars minn hópur.
En verð að segja frá einum mjög svo skemmtilegum ummælum sem kom frá einum nemenda í jakkafötunum sínum.
Bestu ummælin:
Það var mjög skemmtilegt að kynnast þessum heimi, þetta voru allt verkfræðingar að störfum í lopapeysum en samt þrælklárir!
Jáhá - mikið er gott að ég eigi þá kannski smá framtíð fyrir mér og ekki alvitlaus þrátt fyrir að ganga ekki dragt alla daga.
hahah, en ofboðslega steríótýpulegt af jakkafatadrengnum :-D
SvaraEyðaertu ekki fegin að geta átt einhvers konar framtíð án dragtar? :-D
(les þig alltaf, en kommenta eiginlega ekki neitt :-$ gat bara ekki sleppt því núna)
jú varð mjög fegin þegar hann sagði þetta. Möguleiki á framtíð fyrir mig þar sem ég stefni ekki á dragtina í framtíðinni ;)
SvaraEyðaen já takk fyrir kvittið - les sömuleiðis alltaf þitt blogg líka en kvitta ekki heldur