fimmtudagur, febrúar 07, 2008

Bílinn

Í morgun á leið minni út á strætóstoppistöð þá kom smá saknaðartilfinning til jeppans hjá pabba - bílinn sem ég hafði í 2 mánuði.

Nei - það var ekki af því að mér fannst ómögulegt að taka strætó, eða þurfti að ganga í ökkladjúpum (eða aðeins meir) snjó að stoppistöðinni.

Heldur vegna þess að það var ágætis snjór í innkeyrslunni og hefði verið gaman að öslast þar í gegn á jeppanum. En sýndist samt fólksbílarnir fara ágætlega þó þar út hjá okkur.

Finnst einmitt mjög gaman að finna hvernig 4 hjóladrifið virkar. Var mjög oft þannig á jeppanum að ég var við það að finna að ég væri að festa mig á bílastæði eða var í erfiðleikum. Setti svo 4hjóladrifið á og ekkert mál.

Það er gaman

3 ummæli:

  1. þú ert nú pínu gaur í þér ;-)
    kveðja Bella

    SvaraEyða
  2. Gvuð hvað ég er sammála þér, vildi að ég ætti jeppa í svona veðrum og geta leikið mér á honum !

    SvaraEyða
  3. Ég á jeppa :D

    Og það er gaman ða leika sér á honum þessa dagana....

    SvaraEyða