föstudagur, júlí 13, 2007

Strandganga

Fyrsta strandgangan var í gær og tókst líka svona ljómandi vel og góð þátttaka :) ég var að mestu í að túlka. Komu nefnilega þrír útlendingar og ég gerði tilraun til þess að túlka. En að túlka eða reyna að finna hvað bóluþang, beltisþari, klettadoppa og þangdoppa er á ensku er hinsvegar ekki alveg mitt. Gekk aðeins betur í að túlka sögurnar.

Svona er mitt útsýni í göngunum - sé alltaf í bakið á hópnum :)


Lífið í pollunum


Kjalfar



Smakkaði líka þara í gær og GLP tók hellings af myndum af því tilefni...

2 ummæli:

  1. ohh. hvað mig langaði til að koma í gönguna:-(

    Þið eruð líka búin að fá geðveikt veður í sumar..kannski of geðveikt er kannski allt orðið skrælnað hjá ykkur eins og allstaðar annarstaðar ?

    kv. Ásta

    SvaraEyða
  2. er búið að vera rosalega gott veður - skilur bara ekki hvað er að gerast :) en kom smá skúrir einhverja nóttina en annars allt að skrælna.

    kveðja
    Linda

    SvaraEyða