sunnudagur, mars 25, 2007

Hringferð

Hringferð lokið.

Góð ferð og skrifa meira seinna um hana en að spurningu dagsins!

Ég fór hringinn í kringum landið án þess að koma við á Egilsstöðum. Hvorki bíldekk né fætur stigu inn á Egilsstaði.

Hvernig tókst okkur það?

Getur þú svarað því.... kommentaðu :)

4 ummæli:

  1. Þú stökkst í árabát og silgdir framhjá Egilstöðum :Þ

    Nei það veit ég ekki... eru Egilstaðir við þjóðveg 1 ???

    SvaraEyða
  2. Þjóðvegur 1 liggur í gegnum Egilsstaði já :)

    en góð tilraun.

    SvaraEyða
  3. kannski bara hinu megin við Lagarfljótið og farið í gegnum Fellabæ sem er beint á móti Egilsstöðum eða á fjallveg hjá Jökuldal bara svona upp á grín.
    Frænkan Rósa

    SvaraEyða
  4. Má nefna að ég fékk líka 2 símtöl í sambandi við þessa spurningu þar sem annað var alveg rétt svar og hitt var alveg í rétta áttina :)

    En já Rósa - við fórum í gegnum Hallormsstaðaskóg og keyrðum svo tilbaka hinum megin við Lagerfljótið og komum inn í Fellabæ :) og þar af leiðandi komum við aldrei við á Egilsstöðum.

    SvaraEyða