Sauðburður
Átti erindi inn á Egilsstaði um daginn og á leiðinni "heim" þá kom ég við í sveitinni hjá bróður mínum.
En fór í fjárhúsið með honum og sá að minnsta kosti 2 lömb koma í heiminn. Ég var svo lukkuleg að hafa myndavélina mína með og smellti af þónokkrum myndum sem þið getið séð í myndaalbúminu mínu. Þau ykkar sem hafa áhuga :)
bíddu bíddu, varstu á Egilsstöðum og lést mig ekki vita. Hefði boðið upp á kakó og með því!!
SvaraEyðaSkotta
úppss... ég hef verið svona fókuseruð á hvað ég var að fara að gera að ég hugsaði um lítið annað ;)
SvaraEyðasorry - læt vita af mér næst :)