fimmtudagur, ágúst 27, 2009

Myndavél

Keypti mér flotta myndavél á þriðjudaginn :) - mjög lukkuleg með hana. Búin að prófa að taka sjálfsmynd og ég er með opin augu - þannig að hlýtur að vera hin fínasta vél.

Hérna er fyrsta myndin úr henni!














Mjög óspennandi mynd :)


Í dag eftir vinnu þá lá ég í sófanum hálf dottandi þegar ég heyrði eitthvað hljóð, opnaði augun og leit framm í eldhús (úr sófanum) - sá ég þá ekki eitthvað skjótast úr matarkörfunni og inn í geymslu.

Beið ég átektar og sá síðan mús koma og klifra upp í grindina - í matinn hans Hákons. Ég spratt úr sófanum, upp í herbergi....... að sækja myndavélina :)

Settist svo aftur í sófann og beið, tilbúin til þess að skjóta.

Ekki birtist músin aftur.

Þegar Hákon kom heim fórum við að ræða aðgerðina mús úr húsi. En fórum einmitt í eina slíka aðgerð á seinasta ári.

Vandamálið enn og aftur að við vorum ekki með neitt stígvél - eins og allir vita er það nauðsynlegt í músaveiðum. Við nenntum ekki strax í aðgerðina og borðuðum því fyrst, við frágang eftir matinn fór Hákon inn í geymslu og tók eftir músinni í einum af "endurvinnslu" kassanum. Kassinn því tekinn og settur út.

Músin frjáls og á lífi - ólíkt því sem var á seinasta ári.

Músin í kassanum.














Svo hljóp músin út í haga... á þvílíkum hraða

4 ummæli:

  1. Fær maður ekki að sjá fleiri myndir?

    SvaraEyða
  2. ef þú segir hver þú ert :)muahahah en jú eflaust eiga fleiri myndir eftir að rata hér inn og svo að sjálfsögðu í myndaalbúmið mitt

    SvaraEyða
  3. Árni heiti ég og gleymdi að skrifa nafnið mitt. Þú varst búin að lofa mér fullt af myndum... Drífa sig... Ekkert hangs.

    SvaraEyða
  4. Grunaði það - allt á leiðinni. Þarf samt eiginlega á námskeið fyrst :)

    SvaraEyða