Æst
Stundum verð ég svo æst eða frekar spennt yfir einhverju sem ég er að gera. Núna t.d. er ég byrjuð á öðru verkefni og það verkefni tengist að hluta til mastersverkefninu mínu. Er semsagt að finna og lesa greinar. Þegar ég held að ég sé komin á slóð sem mér finnst spennandi og er í rétta átt þá verð ég svo spennt og finnst alveg frábært að vera komin á þessa slóð.
Jafnvel þótt slóðin verður köld einhverju síðar.
En það er gott að maður hefur gaman og verður spenntur yfir því sem maður er að gera :)
Það er nú fínnt að vera æstur yfir einhverju öðru en "kreppunni" á þessu síðustu og verstu ;)
SvaraEyðakv. Ásta D