Einbeitning
Þegar einbeitningin er farin þá er nú alveg eins gott að halda heim á leið. Gagnast voða lítið að sitja hérna í skólanum áfram.
Merkilega nokk þá er ég búin að vera að vinna í ritgerðinni en samt hef ég ekkert komist áfram.
Var að leita og skoða hvað ég gæti bætt við, haldið að ég sé komin á slóðina en svo verður slóðin köld.
Afrakstur dagins: Núll + smá kredit fyrir tölvupóstinn sem ég sendi.
Vonandi verður morgundagurinn betri og skilvirkari. Komin með aðra strategiu til þess að komast áfram í þessari blessaðri ritgerð.
Hæ, ég er orðin svo tilfinningalega fjarlæg tölvunni að við eigum bara notalega stund svona af og til og þess vegna færðu kvittunina mína svona seint og ekki á réttan stað. Vil frekar kvitta fyrir þessa nýjustu færslu en einhverja gamla.
SvaraEyðasvo bara halda áfram í kvöld... fulla ferð áfram ;)
SvaraEyða