laugardagur, apríl 21, 2007

Rottufréttir

já já meira að frétta af rottumálum.

Hitti nágrannan í þvottahúsinu og var að segja henni frá rottunni. Þá var víst nágranninn við hliðina á okkar húsi á rottuveiðum hjá húsinu á móti á mánudagskvöldið. Tókst að drepa rottuna.

Þannig að núna verður hringt í meindýravarnir Reykjavíkurborgar.

7 ummæli:

  1. Þetta er svakalega spennandi, þetta rottumál. Mar bara bíður spenntur eftir næsta pósti, hvað segja meindýravarnir Reykjavíkurborgar, hvað segja borgarfulltrúarnir ?? Fer borgarstjórinn í málið ???

    en skil ég þetta rétt, er þetta inni í húsinu ???

    SvaraEyða
  2. já þetta rottumál er gífurlega spennandi en sem betur fer en sem komið er bara utandyra. Hef enn ekki rekist á neina innandyra....

    SvaraEyða
  3. "Tókst að drepa rottuna."
    Ertu viss um að þetta sé sama rottan?
    Hver bar kennsl á hana og var viss um að þetta var sama rottan?

    Spennan eykst...

    Á.Sal

    SvaraEyða
  4. kæri Á.Sal

    Rottan sem sást á mánudagskvöldinu var drepin. Tvö vitni

    Rottan sem ég sá á föstudagsmorgun getur því ekki verið sú sama og á mánudagskveldinu :) því er um tvær rottur að ræða. Eina dauða og önnur sprelllifandi á hlaupum í hverfinu....

    SvaraEyða
  5. úúúú :D

    Ég skal koma og veiða hana..hef mikla reynslu úr sorpunni ;)

    Hvað býðuru mér mikið???

    SvaraEyða
  6. Hæ skvís :) komstu ekki með uppskriftir frá Kína??? Þeir nota alls konar kjöt þar ;) híhíhí.
    Rottur fjölga sér mjög ört svo þetta hefur kannski bara verið systir eða frænka eða barnapían.
    Vona samt þær láti sig hverfa...nú væri fínt að vera með kött, í flestum tilfellum hata kettir rottur og mýs.
    have fun þin frænka rósa

    SvaraEyða
  7. Eva - þú mundir fá þakklæti fyrir og kannski bara upptakara ;)

    en hvernig væri þá að prófa bara meindýravarnir Rvk ;)

    Rósa frænka - jamm í flestu tilfellum væri köttur góður - býr köttur fyrir ofan og hann var að læðast um daginn með nágrannanum þegar hann var á rottuveiðum. En kötturinn þefaði víst bara af rassinum af rottunni :( gerði ekkert meir!

    SvaraEyða